Almennar upplýsingar
Ólavía og Oliver
Glæsibæ
Álfheimum 74
104 Reykjavik

Verð:

Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti. Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti.

Greitt á netinu:

Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard. Greiðslan er hröð og örugg í gegnum Pay card, einnig er hægt að greiða í gegnum Netgíró, þeirra skilmála má finna á Netgiro.is. Athugið þó sérstaklega að ekki er hægt að greiða með Netgíró í verslun heldur eingöngu í vefverslun.

Vöruskil

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun (gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu). Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 10 daga, varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneingarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignin er í formi kóða eða strimils, sem hægt er að nota jafnt í verslun sem vefverslun. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.,,

Afhending:

Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti. Pakkar undir 2kg. að þyngd í venjulegri stærð eru sendir í B pósti.

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 2-4 virkir dagar, fyrir vöru sem til er á lager.

Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu til okkar. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.

Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

Upplýsingar viðskiptavina:

Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s.nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar.

Útsölur og vöruskil:

Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Inneignarnótur:

Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er. Gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Tilboð og afslættir:

Tilboð gildir ekki með öðrum afsláttum.
Birt með fyrirvara um villur og verðbreytingar ( miðað verður við verð í verslun)

Kvartanir:

Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Kennitala
590564-0289